Skyndibiti
- - Hvað er skyndibiti?
- - Hvernig áhrif hefur skyndibiti á líkamann?
Við erum nemendur í 10. bekk Laugalækjarskóla og við erum að gera lokaverkefni. Okkur langaði að kanna hvaða áhrif skyndibitamatur hefur á heilsufar fólks. Við byrjuðum að afla okkur upplýsinga um hvernig skyndibitamatur er búinn til, einnig horfðum við á heimildarmynd sem heitir " Food inc" sem breytti viðhorf okkar á öllu bakvið ræktun dýra sem stór fyrirtæki framleiða fyrir skyndibitastaði. Við ákváðum að prófa að borða skyndibita í hvert mál í einn dag sem reyndist erfiðara en við bjuggumst við.