Skyndibitadagur
Við tókum þá ákvörðun að borða óhollt í heilan dag og hér fyrir neðan erum við að segja frá okkar líkamlegu og andlegu líðan meðan á þessu stóð.
Morgunmatur
Í morgun mat fengum við okkur boozt á Booztbarnum og Blackbox Parma pizzu.
Hádegismatur
Í hádegismat fórum við á KFC
Alexandra
Ég pantaði klassískan kjúklingaborgara. Borgarinn var afhentur mjög kraminn og ógirnilegur, hann smakkaðist samt sem áður vel en fór aðeins í magann á mér.
|
Þórkatla
Ég pantaði mér tvo kjúklingabita og franskar. Ég var frekar södd frá því í morgunmat svo ég náði bara að borða annan bitann. Hann var góður en fór síðan í magann á mér.
|
Ísabella
Ég pantaði mér Zinger Twister. Hann var allt í lagi en ég náði ekki að klára hann og var flökurt eftir á.
|
Kvöldmatur
Í kvöldmat pöntuðum við Dominos pizzu.
Pizzan bragðaðist vel og var fínn kvöldmatur en þetta var þungt í magann að borða svona mikið af kolvetni allan daginn.